Þjónusta félagsins >>
Styrkir >>
Starfsfólk >>
Fundargerðir >>
Tengdir vefir >>
Kynningarmál >>
Menningarráð Suðurlands auglýsir eftir umsóknum um verkefnastyrki . Umsóknarfrestur er til og með 11. febrúar
05. janúar 2012
Einstaklingar, félagasamtök, fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög á Suðurlandi geta sótt um styrki en skilyrði er að umsækjendur sýni fram á mótframlag. Heimilt er að sækja um styrk til verkefna sem umsækjandi er þegar byrjaður að vinna í.
Menningarráð Suðurlands hefur ákveðið að árið 2012 hafi þau verkefni forgang sem uppfylla eitt eða fleiri eftirtalinna atriða:
1. Samstarf milli tveggja eða fleiri aðila, byggðarlaga eða listgreina og uppsetning viðburða á fleiri en einum stað.
2. Verkefni sem efla nýsköpun tengd menningu.
3. Verkefni sem stuðla beint að fjölgun atvinnutækifæra.
4. Verkefni sem styðja við menningartengda ferðaþjónustu.
5. Verkefni sem draga fram staðbundin eða svæðisbundin menningareinkenni eða menningararf.
Menningarráðið mun hvorki veita rekstrar-, stofnkostnaðar- né endurbótastyrki. Ekki verður heldur styrkt skráning á menningarminjum, starfsemi íþróttafélaga, bæjarhátíðir, almennar samkomur, safnaðarstarf og hefðbundið menningarstarf innan skóla.
Umsóknarfrestur er til og með 11. febrúar 2012.
Ætlunin er að tilkynna um úthlutun fyrir páska 2012.
Umsóknum skal skilað til Menningarráðs Suðurlands á þar til gerðum eyðublöðum sem hægt er að nálgast á heimasíðu Menningarráðs www.sunnanmenning.is . Allar nánari upplýsingar veitir Dorothee Lubecki, menningarfulltrúi Suðurlands, í síma 480-8207, 896-7511 eða með tölvupósti menning@sudurland.is
Menningarfulltrúi verður til viðtals í öllum sveitarfélögum.
Umsóknir skal senda, í tölvupósti á menning@sudurland.is
VIÐVERA MENNINGARFULLTRÚA Í SVEITARFÉLÖGUM
Menningarráð Suðurlands auglýsir viðveru menningarfulltrúa í sveitarfélögum á Suðurlandi vegna úthlutunar á menningarstyrkjum 2012. Allir sem hafa áhuga á að hitta menningarfulltrúa eru beðnir um að panta tíma símleiðis (896-7511) eða í tölvupósti (menning@sudurland.is). Einnig er hægt að óska eftir viðtölum á öðrum tímum. Skrifstofa menningarfulltrúa er að Austurvegi 65, 800 Selfoss.
Vestmannaeyjabær - í ráðhúsinu, Vestmannaeyjum - Föstudagur 06.01.2012 kl. 16:00-18:00
Hornafjörður - Nýheimar - Þriðjudagur 10.01.2012 kl. 10:00-12:00 og 14:00-16:00
Bláskógabyggð - Hreppsskrifstofa Aratungu - Mánudagur 16.01.2012 kl. 12:30-14:30
Grímsnes- og Grafningshreppur - Stjórnsýsluhúsinu, Borg - Þriðjudagur 17.01.2012 kl. 10:00-12:00
Árborg - Stokkseyri - Grunnskólanum á Stokkseyri - Miðvikudagur 18.01.2012 kl. 12:00-13:30
Flóahreppur - Þingborg - Fimmtudagur 19.01.2012 kl.12:00-14:00
Skeiða- og Gnúpverjahreppur - Sveitarskrifstofa Árnesi - Föstudagur 20.01.2012 kl. 10:30-12:30
Árborg - Eyrarbakki - Skrifstofa Byggðasafns Árnesinga við Hafnarbrú - Mánudagur 23.01.2012 kl. 10:30-12:30
Hrunamannahreppur - Skrifstofa Hrunamannahrepps, Akurgerði 6, Flúðum - Þriðjudagur 24.01.2012 kl. 12:30-14:00
Sveitarfélagið Ölfus - Bæjarbókasafni Ölfuss í Þorlákshöfn - Mánudagur 30.01.2012 kl. 10:00-12:30
Hveragerðisbær - Bæjarskrifstofu, Sunnumörk 2, Hveragerði - Þriðjudagur 31.01.2012 kl. 10:30-12:30
Ásahreppur - Hreppsskrifstofa á Laugalandi - Miðvikudagur 01.02.2012 kl. 12:00-14:00
Skaftárhreppur - Hreppsskrifstofa á Kirkjubæjarklaustri - Föstudagur 03.02.2012 kl.12:00-13:30
Mýrdalshreppur - Hreppsskrifstofa, Vík í Mýrdal - Föstudagur 03.02.2012 kl. 15:30-16:30
Rangárþing eystra - Skrifstofa Rangárþings eystra, Hvolsvöllur - Mánudagur 06.02.2012 kl. 11:00-13:00
Rangárþing ytra - Skrifstofa Rangárþings ytra,Suðurlandsvegur 1, Hella - Þriðjudagur 07.02.2012 kl. 11:00-13:00
Viðtalstímar í Árborg (Selfoss) eftir samkomulagi.

























