Ísland allt árið - Þróunarsjóður iðnaðarráðuneytis og Landsbankans. Umsóknarfrestur til 10. janúar
27. desember 2011
Markmið
Sjóðurinn styrkir verkefni sem auka þjónustu við ferðamenn og/eða bæta við upplifun hans. Kaup á búnaði eru ekki á verksviði sjóðsins.
Áhersla er lögð á að verkefni hafi möguleika á að verða sjálfbærar og arðbærar afurðir sem byggja og draga fram sérstöðu svæða og lengja hefðbundið ferðamannatímabil.
Verkefni sem studd eru af þróunarsjóðnum skulu uppfylla eftirfarandi markmið:
- Verkefnið miðar að lengingu ferðamannatímabils á tilteknu svæði.
- Verkefnið leiði til aukinnar arðsemi fyrirtækja.
- Til grundvallar verkefnis liggur verk- og rekstaráætlun
- Verkefnið miði að því að auka þekkingu og hæfni fyrirtækja til að skapa upplifanir.
- Gróf áætlun gerð um samráðsfundi og miðlun áfanga og niðurstaðna.
Framkvæmd
Nauðsynlegt er að geta metið árangur af hverju verkefni. Styrkþegar fylla út verkáætlun fyrir það verkefni sem sótt er um og skila til verkefnisstjóra ásamt þeim mælikvörðum sem á að nota í verkefninu (fjöldi afurða í boði, fjöldi gesta o.fl.).
Helstu verkþættir sem studdir eru:
- Verkefnisstjórn
- Greiningarvinna, undirbúningur og aðkeypt ráðgjöf
- Þróun hugmynda
- Önnur verkefni sem stuðla að lengingu ferðamannatímabilsins
Frumkvöðlastyrkir eru greiddir út eftir framvindu verkefnis og með því er í raun byggt inn i verkefnið mat á árangri. Einnig þurfa styrkþegar að skila inn áfanga- og lokaskýrslu.
Styrkupphæð
Í þróunarsjóðnum eru alls 70 milljónir króna og gert er ráð fyrir tveimur úthlutunum. Í hvorri úthlutun er stefnt að úthlutun styrkja að upphæð allt að 35 milljónum króna.
Samstarfsverkefni
- Um er að ræða samstarfsverkefni þriggja eða fleiri fyrirtækja mögulega með stuðningi stofnana, sveitarfélaga og/eða rannsóknarstofnana.
- Í verkefninu komi fram skýr sýn á sameiginleg markmið aðila samstarfsins.
- Í verkefninu sé langtíma hugsun sem miðar að a.m.k 3 ára samstarfi.
Skilyrði
- Þátttakendur í samstarfsverkefni hafa allir skrifað undir viljayfirlýsingu um samstarf.
- Verkefnin komi til framkvæmda á verkefnistíma Ísland allt árið.
- Umsækjandi skal gera grein fyrir árangursmælikvörðum verkefnis.
- Niðurstöður árangursmælinga verða gerðar opinberar en ekki verður hægt að rekja þær til einstakra verkefna.
- Sjóðurinn styrkir verkefni að hámarki 50% af heildarkostnaði. Mótframlög geta m.a. verði í formi vinnu, aðstöðu ofl.
Umsóknarfrestur og eyðublað
Umsóknarfrestur er til 10. janúar 2012 og er gert ráð fyrir að afgreiðslu verði lokið í febrúar 2012. Umsóknir skal senda í gegnum umsóknarkerfi Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands - Hér má nálgast rafrænt umsóknareyðublað.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar má nálgast hjá Sigríði Kristjánsdóttur, verkefnisstjóra í síma 522 9462 eða á netfanginu sirry@nmi.is.

























